Launatengd gjöld

Innheimta félags- og sjóðagjalda


Birta lífeyrissjóður, Sundagörðum 2, 104 Reykjavík sér um alla innheimtu gjalda til VM. 
Rafrænar skilagreinar eru á http://www.birta.is/, tölvupóstur skilagreinar@birta.is
Bankareikningur: 0526-26-400800, kt: 430269-0389,
Sími: 480 7000 

Félagsgjald (F421) allra félagsmanna VM er 0,8% af heildarlaunum.

Styrktar- og sjúkrasjóður VM (S421)
Samkvæmt almennum kjarasamningum VM við SA ber atvinnurekanda að greiða 1% af
heildarlaunum í Styrktar- og sjúkrasjóð VM.
Fyrir vélstjóra á fiskiskipum ber útgerð að greiða 0,75% af heildarlaunum í Styrktar- og sjúkrasjóð VM.
Fyrir vélastjóra á kaupskipum ber útgerð að greiða 0,5% af heildarlaunum Styrktar- og sjúkrasjóð VM.
Í sérkjarasamningum nokkurra fyrirtækja og stofnana er samið um aðrar prósentutölur.

Orlofssjóður (O421)
Samkvæmt kjarasamningum VM ber atvinnurekanda að greiða a.m.k. 0,25% af heildarlaunum í orlofssjóð VM. Undantekningar eru í sérkjarasamningum nokkurra fyrirtækja og stofnana.

Endurmenntunargjald til IÐUNNAR - fræðsluseturs
Málm-, véltæknigreinar og vélstjórar á fiskiskipum (E460) og netagerð (E463)
Kjarasamningar vegna starfa í landi
  Greiða ber 0,5% af launum í endurmenntunargjald vegna þeirra sem starfa
  samkvæmt kjarasamningi VM við SA.
Kjarasamningur vélstjóra á fiskiskipum
  Greiða ber 0,5% af kauptryggingu vélstjóra í endurmenntunargjald vegna þeirra
  sem starfa samkvæmt kjarasamningi VM við SFS.

Fræðslusjóður VM (E421) ATH. á einungis við um sérsamninga
Félagsmenn VM geta samið um sérstakar greiðslur í fræðslusjóð VM í persónubundnum samningum. Fyrir vélfræðinga sem starfa á rammasamningi ber vinnuveitanda að greiða 1,1% af heildarlaunum, nema samið hafi verið um annað. Í samningum við ýmis fyrirtæki og stofnanir er kveðið á um greiðslur í fræðslusjóð allt að 1,1% af heildarlaunum.

Starfsendurhæfingarsjóður - innheimtist af lífeyrissjóði
Samkvæmt kjarasamningum VM ber atvinnurekanda að greiða í Starfsendurhæfngarsjóð af starfsmönnum. Gjaldið er 0,10% og greiðist með lífeyrisiðgjöldum til viðkomandi lífeyrissjóðs en ekki með félagsgjöldum til VM.

Námssjóður iðnaðarmanna skv. kjarasamningi við Samband sveitarfélaga árið 2019
Umsýsluaðili: 2F - Fagfélögin Stórhöfða, kt: 560896-2559.
Bankareikningur 515-26-005246
Senda skilagrein á palmi@samidn.is
Greiða á og 1.5% af öllum launum frá nóvember 2019.
Stofnframlag kr. 64.400 átti að greiða 1 desember 2019.

Greiðslumiðlun (G921)  - tók gildi 1.1.2014
Á móti iðgjaldi vélstjóra greiðir útgerð 0,21% iðgjald af launum til VM. Útgerðarmaður skal standa skil á iðgjöldum samtímis greiðslum til annarra sjóða stéttarfélagsins, þ.e. um leið og reikningsuppgjör fer fram eftir lok hvers kauptryggingartímabils.