Desemberuppbót
Desemberuppbót greiðist eigi síðar en 15. desember ár hvert, miðað við starfshlutfall og starfstíma, öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi fyrstu viku í desember.
Heimilt er með samkomulagi við starfsmann að uppgjörstímabil sé frá 1.12. til 30.11. ár hvert í stað almanaksárs.
Starfsmaður sem lætur af störfum á árinu skal við starfslok fá greidda desemberuppbót miðað við starfstíma og starfshlutfall á árinu. Fullt ársstarf telst 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.
Desemberuppbót | Ár 2021 | Ár 2022 |
Almennur samningur VM við SA um störf félagsmanna í landi | kr. 96.000 | kr. 98.000 |
Félagsmenn VM hjá Faxaflóahöfnum | kr. 111.300 | kr. 114.300 |
Vélstjórar á kaupskipum | kr. 96.000 | kr. 98.000 |
Vélstjórar á skipum Landhelgisgæslu og Hafrannsóknarstofnunar | kr. 96.000 | kr. 98.000 |
Félagsmenn VM hjá Landsvirkjun | kr. 138.757 | kr. 142.226 |
Félagsmenn VM hjá HS-orku | kr. 134.156 | kr. 137.510 |
Félagsmenn VM hjá ÍSAL | ||
Félagsmenn VM á samningi sveitarfélaga | kr. 121.700 | kr. 124.750 |
Félagsmenn VM hjá Orkuveitu Reykjavíkur | kr. 111.300 | kr. 114.000 |
Félagsmenn VM hjá Norðurorku | kr. 132.000 | kr. 134.000 |
Félagsmenn VM hjá Orkubúi Vestfjarða | kr. 185.993 | kr. 198.493 |
Vélfræðingar á Rammasamningi | kr. 138.757 | kr. 142.226 |