21.12.2022
Niðurstaða atkvæðagreiðslu um Almenna kjarasamning VM við SA

Niðurstaða atkvæðagreiðslu um Almenna kjarasamning VM.
Alls tóku 777, eða 39,60% þeirra sem voru á kjörskrá, þátt í kosningunni.
Já sögðu 595 eða 76,58% þeirra sem greiddu atkvæði.
Nei sögðu 146 eða 18,79% þeirra sem greiddu atkvæði.
Og 36 eða 4,63% þeirra sem greiddu atkvæði tóku ekki afstöðu.
Samningurinn var því samþykktur með yfir 76% greiddra atkvæða.
VM þakkar öllu félagsfólki fyrir að taka þátt í atkvæðagreiðslunni og segja hug sinn. Það er vilji ykkar sem skiptir öllu máli og það hefur verið ómetanlegt fyrir fulltrúa VM að hitta ykkur á kynningarfundum í síðustu viku.
RSÍ og VM héldu saman 11 formlega kynningarfundi en auk þess voru MATVÍS og Byggiðn með á þrem fundum. Fundirnir voru vel sóttir, en rúmlega 400 manns mættu. Það er augljóst að virk þátttaka ykkar í félagsstarfinu skilar sér í betri vinnu og þéttari hagsmunabaráttu.
Að þessu sinni útvíkkuðum við samstarf við endurnýjun kjarasamninganna þegar samflot iðn- og tæknifólks tók höndum saman með VR/LÍV. Það er ljóst að samstarfið skipti sköpum við samningaborðið og viljum við senda þakkarkveðjur til félaga okkar fyrir gott og ánægjulegt samstarf.