Viðburðir 10 2018
föstudagur, 26. október 2018
Talning í kjöri til forseta Alþýðusambands Íslands er lokið og féllu atkvæði þannig að Drífa Snædal hlaut 192 atkvæði eða 65,8% en Sverrir Mar Albertsson fékk 100 atkvæði eða 34,2%. Atkvæði greiddu 293 og var eitt atkvæði ógilt.
miðvikudagur, 24. október 2018
Þing Alþýðusambands Íslands (ASÍ) hefst í dag klukkan 10. Fyrir liggur að um 300 þingfulltrúar úr 48 stéttarfélögum munu kjósa nýja forystumenn ASÍ á föstudag. VM á 14 fulltrúa á þinginu og ljóst er að mikil eftirvænting er fyrir þinginu enda stór verkefni sem bíða þingsins.
föstudagur, 19. október 2018
Í vor bárust fréttir af því að stórauka ætti eftirlit á öllum skipum sem stunda veiðar í atvinnuskyni í fiskveiðilögsögu Íslands. Samkvæmt frumvarpsdrögum áttu skip að hafa um borð virkt, rafrænt myndavélakerfi, sem fylgist með veiðum og vinnslu afla.
mánudagur, 15. október 2018
Í fiskifréttum sem komu út þann 13. október, þar kemur fram að mikill skortur er á blikksmiðum, vélvirkjum, plötusmiðum og rennismiðum og skortur á sérmenntuðu vinnuafli er farið að há mörgum iðntæknifyrirtækjum.
miðvikudagur, 10. október 2018
Fyrsta skóflustungan að 33 nýjum leiguíbúðum sem Bjarg íbúðafélag byggir var tekin í dag við Asparskóga 12, 14 og 16 á Akranesi.
Reiknað er með að afhending til leigutaka verði í tvennu lagi, 1. júní og 1. júlí 2019. Þá hefur verið gert samkomulag við Akraneskaupstað um að þeir fái til ráðstöfunar 25% íbúðanna að Asparskógum.