Pistlar 2021
fimmtudagur, 30. desember 2021
Í febrúar árið 2020 greindist fyrsta Covid - 19 smitið hér á á Íslandi. Þá var gripið til harðra aðgerða með grímuskyldu, fjarlægðartakmörkum og fjöldatakmörkunum. Við þekkjum þetta allt vel nú tæpum tveimur árum seinna.
föstudagur, 26. nóvember 2021
Í vikunni kom Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra fram í fréttum og sagði að það væru takmörk fyrir því hvers mikið laun á Íslandi gætu hækkað og nefndi meðal annars að það væri erfitt að skilja hversvegna ætti að koma hagvaxtarauki þegar hagvöxtur á mann er að vaxa fyrst og fremst vegna þess að við lendum í efnahagsáfalli.
föstudagur, 5. nóvember 2021
Eins og flestir þið vita hafa kjarasamningar vélstjóra á fiskiskipum nú verið lausir í í rúm tvö ár. Það er að verða regla frekar en undantekning að sjómenn séu kjarasamningslausir í fleiri fleiri ár á milli samninga sem er algerlega óboðlegt.
föstudagur, 17. september 2021
Stærstu sjávarútvegsfyrirtæki landsins eru gríðarlega stór fyrirtæki. Fyrirtækin eiga bátana sem veiða fiskinn, eiga vinnslunnar sem vinna fiskinn, eiga íslensku sölufyrirtækin sem selja fiskinn út, eiga erlendu sölufyrirtækin sem kaupa fiskinn úti, og dæmi eru orðin um það að fyrirtækin eigi hlut í fiskverslunum erlendis.
föstudagur, 10. september 2021
Stéttarfélög sjómanna slitu í síðustu viku samningaviðræðum við útgerðarmenn um gerð nýs kjarasamnings. Sjómenn fóru fram með þær hógværu kröfur að greitt yrði sama mótframlag í lífeyrissjóð og annað launafólk fá og að kauptrygging sjómanna hækki um sömu krónutölur og laun á almennum vinnumarkaði.
fimmtudagur, 8. júlí 2021
Eins og flestir vita þá erum við í samningaviðræðum við SFS vegna kjarasamnings vélstjóra á fiskiskipum. Á meðan forsvarsmenn útgerðamanna sitja við samnignsborðið og lítið sem ekkert miðaðst, virðast uppsjávarútgerðir höggva í sömu knérunn.
föstudagur, 2. júlí 2021
Síðustu vikur hafa verið óvenju anna samar miðað við árstíma á skrifstofu VM. Félagið skrifaði undir kjarasamning 22. júní við ÍSAL. Samningar tókust þar án þess að vísa þurfti deilunni til Ríkissáttasemjara, sem er af hinu góða.
mánudagur, 7. júní 2021
Sjómannadagurinn er gjarnan notaður til þess að mæra sjómenn, hetjur hafsins sem bera björg í bú. Hvernig er svo staðan í dag? Nú eru sjómenn búnir að vera með lausa kjarasamninga í um það bil eitt og hálft ár og lítið miðar.
fimmtudagur, 3. júní 2021
Góðir VM félagar
Í lok febrúar á síðasta ári þegar fyrsta Covid – 19 smitið greindist hér á landi, held ég að engan hefði grunað að við værum enn að glíma við hana núna rúmu ári seinna. Staðan er sem betur fer gjörbreytt.
föstudagur, 21. maí 2021
Það er vor í lofti a.m.k hér sunnanlands, það er þó ekkert sérstakt vor í lofti á íslenskum vinnumarkaði, hávaðarok er á sumum stöðum þar sem okkar félagsmenn starfa á.
Setið er við samningaborðið hjá Ríkissáttasemjara vegna kjarasamnings vélstjóra á fiskiskipum, það er lítið sem ekkert að gerast þar, útgerðarmenn eru ekki tilbúin að teygja sig hænufet til okkar sjómanna.