16.10.2014
Ekkert traust til að byggja á
Nú í aðdraganda endurnýjunar kjarasamninga á almenna vinnumarkaðnum veit enginn hvernig á að hefja þá vinnu sem átti að byrja þegar skrifað var undir hinn svokallaða aðfarasamning fyrir tæpu ári. Ástæðan er sú að ekkert traust er til að byggja á. Ætlunin var að nota tímann til að fara yfir málin og taka upp ný vinnubrögð. Hinn fögru fyrirheit stóðust ekki nú frekar enn oft áður. Ég fullyrði að málflutningur Samtaka atvinnulífsins (SA) á þeim tíma var algerlega innihaldslaus. Þar eru menn einangraðir í hagfræðifrösum og algerlega sambandslausir við þá sem reka fyrirtæki í hinum ólíku atvinnugreinum. Hjá SA er enginn hljómgrunnur fyrir nýjum og breyttum vinnubrögðum við gerð kjarasamninga. Þar sem atvinnugreinarnar koma að gerð sinna samninga og útfæra breytingar á launatöxtum með það að markmiði að auka framlegð. Aukin framlegð er mörgum atvinnugreinum lífsnauðsyn til þess að geta bætt kjörin og laða hæft starfsfólk til sín.
Hagfræðifrasarnir er það eina sem kemur úr fílabeinsturni SA enda vilja samtökin ekki missa frá sér miðstýringuna sem þau hafa komið á. Miðstýring SA er að draga úr allri framþróun og aukinni framlegð sem margar atvinnugreinar eiga auðvelt með að bæta.
Það er ekkert traust til staðar og engin ný fagnaðarerindi sem hægt er að leggja á borð fyrir launþega þessa lands. Eftir áratuga tilraunir er fullreynt með kjarasamninga sem byggja á lágum launahækkunum og væntingum um litla verðbólgu. Þær hafa allar farið á sama veg. Launamaðurinn tekur á sig veðbólguna en fyrirtækin, ríkisvaldið og sveitarfélög velta hækkununum út í verðlag og skatta.
Það er er aðeins ein leið eftir til að byggja upp traust meðan verið er að ná jafnvægi í hagkerfinu. Hún er að laun verði kaupmáttartryggð til næstu þriggja til fimm ára. Þetta er eina leiðin til að tryggja að allir axli ábyrgð á því að halda aftur af óeðlilegum hækkunum og verðbólgu. Það eru öll hlutföll í hagkerfinu vitlaus, launahlutföll, hagnaður fyrirtækja og fl. það er því margt sem þarf að laga í hagkerfinu, óháð niðurstöðum kjarasamninga.
SA gráturinn og annarra um samspil launahækanna og verðbólgu er ekki alltaf réttur. Ef greind eru áhrif 3,25 prósenta launahækkunarinnar sem kom í 1. febrúar 2013 þá hefði hún samkvæmt því sem hagfræðingar segja mér eingöngu átt að hafa 1,2 til 1,5 prósent verðbólguáhrif. Enn verðbólgan var 4,8 prósent í febrúar 2013 og var enn í 4,3 prósentum í ágúst sama ár. Ef þessar forsendur eru réttar þá er það ljóst að launahækkanir einar og sér eru ekki orsakir alls ills í óstjórn efnahagsmála. Ég sé engan mun á að tryggja kaupmátt launa sjálfvirkt tímabundið eða sækja hann eftir á.
Við sem stöndum í kjarasamningagerð erum alltaf að ná í þetta eftir á til að reyna að halda í kaupmáttinn, meðan aðrir hagað sér að vild án ábyrgðar með óhóflegum hækkunum eða aðför að gengi krónunnar. Það ætti ekki að vera flókið fyrir hagfræðingana að gefa út hver verðbólguáhrifin eru við gerð kjarasamninga. Með þá vitneskju er auðvelt að sjá hvaða aðrir orsakavaldar eru að valda aukinni verðbólgu.
Við verðum líka að ræða í alvöru hvort sífeld umræða um stöðuleika er raunhæf. Við verðum að spyrja okkur að því hvort hægt verði að koma á stöðuleika og lækka vexti með okkar litla gjaldmiðli? Við verðum að spyrja okkur að því hvort ekki hafi verið fullreyndar allar hugmyndirnar sem menn hafa átt undanfarna áratugi? Eru einhverjar varanlegar lausnir til sem á eftir að reyna? Ef svo er ekki þá verðum við að viðurkenna það.
Við kunnum gömlu aðferðirnar við að elta verðbólguna og fá eftirá launahækkanir til að reyna að viðhalda kaupmættinum, við erum flott í því.
Kv. Guðmundur Ragnarsson, formaður VM