20.8.2012
Ég, Samherji og Seðlabankinn
Stjórnendur Samherja gera mér fullhátt undir höfði þegar þeir halda að ég sé örlagavaldur í vanda fyrirtækisins vegna rannsóknar Seðlabankans á viðskiptum þess.
Fyrirtækið hélt fund nýverið með starfsmönnum sínum á Akureyri. Þar voru lögð fram gögn um sjávarútvegsfrumvörpin og það sem ég hef sagt og skrifað í leit minni að skýringum á hvernig standi á því að íslenskir sjómenn fái til muna lægra verð fyrir sinn afla en til að mynda norskir. Stjórnendur Samherja höfðu látið vinna samantektir um það sem ég hef sagt og skrifað. Trúlegast til að freista þess að draga úr trúverðugleika mínum. Ekki höfðu þeir dug í sér til að bjóða mér til fundarins svo ég hefði möguleika á að skýra það sem lagt var fyrir fundinn. Enda hefðu þeir þá sennilega ekki náð tilgangi sínum, að draga úr trúverðugleika mínum eins og áður sagði og þá um leið að láta að því leiða að það sem ég hef spurt um sé einskis virði og að ekki sé ástæða til að svara mér. Til að undirstrika markmið sitt slitu þeir úr samhengi það sem ég hef sagt en þrátt fyrir það má sjá á lestri þess sem þeir kusu að birta margt sem kallar á svör, ekki útúrsnúninga og vandræðagang.
Ein af tilvitnunum er eftirfarandi:
Grein eftir formanninn sem birtist í 3. tölublaði Tímarits VM um
verðmyndun á fiski sem kom út í október 2011
Greinin bar heitið: Mikill munur á verði milli landa
Þar ritar Guðmundur meðal annars:
,,Hærra verð til útlendinga
...íslenskar útgerðir ákveða verð til sinna sjómanna einhliða. Áhafnir eru settar í þá stöðu að sætta sig við verðið til að halda starfi sínu. það er þröngur kostur, sjómönnum er annt um fjárhagslegt öryggi sitt og fjölskyldna sinna...
Framkvæmdastóri LÍÚ viðurkenndi það sem þarna er sett fram í viðtali við Spegilinn hjá RÚV.
VM er gott stéttarfélag og leggur sig fram við að gæta hagsmuna félagsmanna sinna á öllum sviðum. Samherji eins og aðrar útgerðir vita um þá miklu spennu sem sífellt ríkir um verðlagningu á fiski hér á landi. Mér sem formanni félagsins ber skylda til að reyna að minnka þá spennu með því að setja fram spurningar og kalla eftir svörum til að geta svarað mínum umbjóðendum. Meðan ekki er hægt að setjast niður og finna eðlilegar skýringar á verðmynduninni þá elur slíkt á tortryggni. Ekki mun standa á mér að taka þátt í að útskýra verðmuninn fyrir mínum umbjóðendum um leið og eðlilegar skýringar koma fram. HB Grandi hefur stigið þetta skref, með samanburð á verðmyndun hér, í Noregi og Færeyjum. VM er tilbúið að fara í þá vinnu með þeim. Útgerðin á hrós skilið fyrir fundinn sem þeir héldu með sínum sjómönnum um þessi mál og buðu stéttarfélögum sjómanna á.
Einn af eigendum Samherja, Kristján Vilhelmsson sendi mér framangreinda samantekt sólahring eftir að fundurinn átti sér stað með þeim ummælum sem ég ætla að vitna í:
,,Auk þess þar sem þú sem formaður VM virðist vera mikil áhrifavaldur í rekstri Samherja hf um þessar mundir lét ég taka saman nokkrar tilvitnanir í skrif þín, ummæli og viðtöl úr þáttum Ríkisútvarps/sjónvarps. Þessi samantekt lá einnig frammi á fundinum".
Hvernig Samherjamenn tengja rannsókn Seðlabanka Íslands á félaginu við formann VM er mjög langsótt og illskiljanlegt. Ég skrifaði grein um verðlagsmál á fiski í Tímarit VM í október 2011. Hún vakti athygli fjölmiðla sem fóru eitthvað að kafa í málin. Það er mér alls óviðkomandi hvernig fjölmiðlar vinna sína vinnu. Samherjamenn sýna með þessu að allt verður lagt í sölurnar í hagsmunagæslunni. Þeir fara beint í manninn en ekki boltann, í kappleik með dómara fengju þeir rautt spjald og væru reknir útaf.
Sjálfsagt eru þeir vanir að spila leikinn þannig á sínum heimavelli, að þeir semja leikreglurnar og sjá um dómgæsluna.
Ég ætla að enda þetta með síðustu setningunni í fyrrnefndri grein minni sem virðist vera búin að vald miklum pirring.
,,Mig langar til að skilja og fá skýringar fyrir hönd minna umbjóðenda hjá VM".
Kv. Guðmundur Ragnarsson, formaður VM