16.2.2022
Sameiginleg móttaka 2F
Á föstudaginn opnaði sameiginleg móttaka fyrir öll aðildarfélög og aðildarsambönd að Húsi Fagfélaganna að Stórhöfða 29 – 31.
Með þessu skrefi er stigið enn stærra skref til að auka samvinnu í iðnaðarsamfélaginu að Stórhöfða. Markmiðið er að auka enn betur þjónustu við félagsmenn þeirra félaga og sambanda sem eiga aðild að Húsi Fagfélaganna. Að sama skapi er þessi aukna samvinna liður í því að tryggja að rödd iðnaðarsamfélagsins heyrist enn frekar í samfélaginu.
Að Húsi Fagfélaganna standa:
- Rafiðnaðarsamband Íslands
- VM – Félag vélstjóra og málmiðnaðarmanna
- Byggiðn – Félag byggingamanna
- Félag iðn- og tæknigreina (FIT)
- Samiðn – Samband iðnðfélaga
- MATVÍS
Hér má sjá formenn þeirra sem eiga aðild að Húsi fagfélaganna klippa á borða í tilefni dagsins:
Á myndinni eru frá vinstri Kristján Þórður Snæbjarnarson formaður RSÍ, Guðmundur Helgi Þórarinsson formaður VM, Finnbjörn A. Hermannsson formaður Byggiðnar, Hilmar Harðarson formaður FIT og Óskar H. Gunnarsson formaður MATVÍS.