6.10.2021
Kjarakönnun VM 2021
VM hefur falið Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands að sjá um framkvæmd kjarakönnunar á meðal félagsmanna VM sem starfa í landi.
Dagana 12., 17., og 27. október fengu þeir þátttakendur sem eru á póstfangalista VM, tölvupóst frá Félagsvísindastofnun
með hlekk á könnunina. Þeir þátttakendur sem ekki eru á tölvupóstfangalista VM fá sent bréf.
Við hvetjum félagsmenn til að taka þátt í kjarakönnuninni. Spurt er um laun fyrir september árið 2021 og ýmsar bakgrunnsupplýsingar. Þátttakendur þurfa því að hafa launaseðil fyrir september mánuð við hendina.
ATH. Sendandi póstsins er Félagsvísindastofnun og heiti hans er Kjarakönnun VM 2021.
Í póstinum er hlekkur á könnunina. Þátttakendur þurfa ekki aðgangsorð eða auðkenni.
ATH. Svona fjölpóstur getur lent í ruslpósti móttakenda.