Fréttir 2020
mánudagur, 21. desember 2020
Á félagsfundum í kringum jól og áramót er hefð fyrir því að ræða málefni vélstjóra fiskiskipa og önnur mál.
Fundurinn í ár verður eingöngu fjarfundur vegna aðstæðna í samfélaginu.
Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 29. desember kl.
föstudagur, 18. desember 2020
Öryggi sjómanna stefnt í hættu
Eina tiltæka þyrla Landhelgisgæslunnar bilaði í fyrradag og þess vegna er engin þyrla útkallshæf. Beðið er eftir að varahlutur berist til landsins.
Samkvæmt Landhelgisgæslunni á þyrlan að vera klár í kvöld, þá hefur Landhelgisgæslan verið þyrlulaus á þriðja sólarhring.
mánudagur, 14. desember 2020
Miðvikudaginn 23.des. frá kl. 08:00 – 12:00
Mánudaginn 28.des frá kl. 10:00 – 16:00
Þriðjudaginn 29. Des frá kl. 08:00 – 16:00
Miðvikudaginn 30.des frá kl. 08:00 – 16:00
Lokað er 24.des og 31.des
Opnum aftur mánudaginn 4.
föstudagur, 27. nóvember 2020
Grrái herinn sendi áskorun til alþingismanna í gær
Hér er hægt að lesa áskorunina
Fram þjáðir menn í öllum samfélagshópum.
fimmtudagur, 26. nóvember 2020
Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, lést á Landspítalanum þann 18. nóvember sl. eftir stutt veikindi. Hann var 66 ára gamall. Halldór helgaði verkalýðshreyfingunni starfsævi sína eftir að hann lauk námi í vinnumarkaðsfræðum við University of Warwick á Englandi.
sunnudagur, 22. nóvember 2020
Vegna mistaka í pökkun bréfa urðu þau leiðu mistök að bréf með kynningu á könnuninni á pólsku voru send á a.m.k. hluta þeirra sem eiga að frá bréf á íslensku.
Bréfin eru send þeim sem eru ekki á tölvupóstfangaskrá félagsins, með upplýsingum um að hringt verði í viðkomandi og honum boðið að svara könnuninni gengum síma eða, ef viðkomandi á tölvupóstfang, að fá krækju á könnuninna senda í tölvupósti.
mánudagur, 16. nóvember 2020
Vegna COVID 19 ástandsins í samfélaginu hefur VM ákveðið að leyfa eingöngu helgarleigu, föstudag til mánudags, á orlofshúsum og íbúðum frá 16 nóvember til 2. desember. Íbúðir í Reykjavík verða áfram lokaðar til 2. desember.
þriðjudagur, 10. nóvember 2020
Atkvæðagreiðslum um kjarasamninga við ISAL lauk kl. 11 í dag og liggja niðurstöður fyrir. Starfsfólk ISAL samþykkir kjarasamningana sem gerðir voru í október. Niðurstöður eru eftirfarandi:
Alls
Greidd atkvæði
Þátttaka
Kjörsókn
83
75
90,4%
Fjöldi
Hlutfall
Já sögðu
64
85,3%
Nei sögðu
9
12,0%
Tóku ekki afstöðu
2
2,7%
Kjarasamningurinn telst því samþykktur.
mánudagur, 2. nóvember 2020
KJÓSA
Atkvæðagreiðsla um samkomulag um framlengingu kjarasamnings milli Samtaka atvinnulífsins vegna Rio Tinto á Íslandi hf. annars vegar og VM – Félags vélstjóra og málmtæknimanna, Rafiðnaðarsambands Íslands vegna Félags íslensra rafvirkja og Félags rafeindavirkja og FIT – Félags iðn- og tæknigreina hins vegar hefst fimmtudaginn 5. nóvember 2020 klukkan 11:00.
Rafræn atkvæðagreiðsla um samkomulag um framlengingu kjarasamnings milli Samtaka atvinnulífsins vegna Rio Tinto á Íslandi hf.
föstudagur, 30. október 2020
Vegna COVID 19 ástandsins í samfélaginu hefur VM ákveðið að loka og afturkalla allar leigur á orlofshúsum og íbúðum frá 2 nóvember til 23. nóvember . Við fylgjumst að sjálfsögðu með fréttum og stöðu á samkomubanni og látum vita ef eitthvað breytist.