7.10.2020
Orlofshús og orlofsíbúðir VM í ljósi Covid-19
Í ljósi aðstæðna í samfélaginu vegna Covid-19 ítrekum við að ekki er heimilt að nýta orlofshús og íbúðir VM fyrir sóttkví eða einangrun þegar um smit vegna Covid-19 er að ræða. Ef upp koma veikindi, staðfest covid-19 smit eða tilmæli um sóttkví á meðan á dvöl stendur er mikilvægt að láta skrifstofu VM vita til að hægt sé að gera viðeigandi ráðstafanir.
Vegna kórónuveirunnar kemur umsjónarmaður ekki í orlofshús á meðan þið dveljið þar nema að um neyðartilvik sé að ræða.
Þeir sem eiga bókað orlofshús /orlofsíbúð á næstu dögum og treysta sér ekki til að fara geta fengið leiguna endurgreidda. Hafið samband við skrifstofu vegna endurgreiðslu í síma 5759800. Einnig er hægt að senda póst á vm@vm.is