17.10.2019
Námskeið um lífeyrismál fyrir VM
VM býður félagsmönnum sínum á námskeið um lífeyrismál fimmtudaginn 7. nóvember n.k. kl. 19.30. Athugið að makar félagsmanna eru velkomnir með á námskeiðið. Námskeiðið verður haldið í húsakynnum VM að Stórhöfða 25 í fundarsal félagsins á 3. hæð. Skráning á námskeiðið er í síma 575 9800 eða á netfangið vm@vm.is, með kennitölu, nafni, síma og nafni maka. Hámarksfjöldi á námskeiðið er 40 aðilar.
Á námskeiðinu er farið yfir helstu stoðirnar í lífeyriskerfinu og hvernig þær virka. Rætt um stoðirnar sem mynda lífeyrisgreiðslur og reynt að svara ýmsum spurningum sem varða lífeyrismál.
1: Lífeyrir frá Tryggingarstofnun (TR) fjárhæðir og tekjutengingar.
- Hverjar eru lífeyrisgreiðslur frá TR og hvaða áhrif hafa atvinnutekjur, greiðslur frá lífeyrissjóðum og aðrar tekjur á lífeyrisgreiðslur TR.
- Tekjuætlun TR
- Hvenær er hægt að hefja töku lífeyris hjá TR?
2: Lífeyrissjóðir samtryggingardeild
- Lífeyrisgreiðslur hvað ræður fjárhæð lífeyris?
- Áfallalífeyrir örorku-, maka- barnalífeyrir
- Eru lífeyrisgreiðslur verðtryggðar?
- Skipting lífeyrisréttinda milli hjóna og sambýlisfólks
- Hvenær er hægt að hefja töku lífeyris?
- Hvar finn ég upplýsingar um lífeyrisréttindin mín?
3: Séreignarsparnaður
- Hvenær er hægt að innleysa séreignarsparnað og skattlagning?
- Áhrif séreignarsparnaðar á lífeyrisgreiðslur TR
4: Tilgreind séreign
- Hvernig virkar tilgreind séreign
- Hvert er fyrirkomulagið á útgreiðslu tilgreindar séreignar og skattlagning
5: Hvað þýðir tryggingarfræðileg staða lífeyrissjóða?
6: Hugmyndir um hækkun á lífeyrisaldri og breytingu á aldursamsetningu þjóðarinnar.
7: Annar lífeyrir og skattlagning