19.7.2019

Samkomulag um frestun á viðræðum við útgerðir kaupskipa

Samningsaðilar hafa komið sér saman um frestun á viðræðum vegna sumarleyfa og munu samninganefndir hefja aftur viðræður í lok ágúst 2019.

 Vegna þessa munu kaupskipaútgerðirnar greiða eingreiðslu að upphæð 130.000 kr. með launaútborgun þann 1. ágúst 2019 sem gildir sem fyrirframgreiðsla inn á þær launahækkanir sem samið verður um í kjarasamningum.