1.7.2019

Samkomulag um frestun á viðræðum við Orkubú Vestfjarða

Samningsaðilar hafa komið sér saman um frestun á viðræðum vegna sumarleyfa og munu samninganefndir hefja aftur viðræður í september 2019.

Vegna þessa munOrkubú vestfjarða greiða eingreiðslu að upphæð 153.000 kr. með launaútborgun þann 1. ágúst 2019 sem gildir sem fyrirframgreiðsla inn á þær launahækkanir sem samið verður um í kjarasamningum.