25.6.2019

Endurskoðuð viðræðuáætlun hjá VM og samninganefnd ríkisins

Samninganefnd ríkisins og Félag vélstjóra og málmtæknimanna sammælast um að endurskoða viðræðuáætlun sem undirrituð var 14. febrúar 2019. Aðilar munu ræða saman undir friðarskyldu með það að markmiði að ljúka endurnýjun kjarasamnings fyrir 30. september 2019.

Hægt er að nálgast samkomulagið hér. 

Þetta samkomulag nær yfir félagsmenn VM sem starfa hjá Landhelgisgæslunni og Hafrannsóknarstofnun. 

Eingreiðsla að upphæð 105.000 verður greidd þann 1. ágúst 2019.