Fréttir 04 2019
föstudagur, 26. apríl 2019
Staða kjaraviðræðna iðnaðarmannafélagann og SA er á viðkvæmu stigi eins og sakir standa.
Samningaviðræður hafa verið að mjakast og hefur verið ákveðið að hittast aftur á morgun. Ljóst er þó að hlutirnir þurfa að ganga hraðar á morgun ef samningar eiga að takast á allra næstu dögum.
þriðjudagur, 23. apríl 2019
Á skírdag komu félagar okkar frá Dansk Metal í heimsókn til okkar og fengu að kynna sér starfsemi félagsins. Hópurinn sem kom að heimsækja okkur er frá Fjóni í Danmörku og kom til að kynna sér starfsemi stéttarfélaga á Íslandi í samanburði við félög í Danmörku.
þriðjudagur, 16. apríl 2019
Í gær mánudaginn 15. apríl voru samninganefndir iðnaðarmannafélaganna kallaðir á fund til þess að fara yfir stöðu kjaraviðræðna. Góð mæting var á fundinn en einnig voru félagsmenn á fjarfundi víðsvegar um landið.
mánudagur, 8. apríl 2019
Þann 3. apríl síðastliðinn skrifuðu Landssamband íslenskra verslunarmanna og Starfsgreinasambandið undir kjarasamning við Samtök atvinnulífsins. Enn er ekki búið að ganga frá nýjum kjarasamningum fyrir iðnaðaramenn en formlegur fundur var haldinn hjá Ríkissáttasemjara síðasta fimmtudag.
föstudagur, 5. apríl 2019
Ársfundur Gildis 2019 og ársskýrsla
Ársfundur Gildis-lífeyrissjóðs verður haldinn klukkan 17.00 fimmtudaginn 11. apríl á Grand Hótel Reykjavík.
Dagskrá:
Skýrsla stjórnar.
Kynning ársreiknings.
mánudagur, 1. apríl 2019
Aðalfundur VM fór fram föstudaginn 29. mars Á Hallveigarstíg 1 í miðbæ Reykjavíkur. Góð mæting var á aðalfundinn og ljóst er að félagsmenn eru áhugasamir að fá fréttir af félaginu.
Á fundinum fóru fram hefðbundin aðalfundarstörf eins og skýrsla formanns, ársreikningar kynntir og lagabreytingar.