Fréttir 03 2019
föstudagur, 22. mars 2019
Aðalfundur VM verður haldinn þann 29. mars 2019Fundarstaður: Hallveigarstígur 1, 101 Reykjavík.Fundurinn hefst klukkan 17:00.
ATH BREYTTA STAÐSETNINGU AÐALFUNDAR VM 2019!
Vegna verkfallsboðunar VR og Eflingar á hótelum dagana 28. og 29. mars 2019 hefur stjórn VM tekið þá ákvörðun að breyta fundarstað aðalfundar sem auglýstur var á Grandhótel Reykjavík.
þriðjudagur, 19. mars 2019
Iðnaðarmenn slitu samningaviðræðum við Samtök atvinnulífsins fyrir hádegi í dag, þriðjudaginn 19. mars.
Stöðumat samninganefndar iðnaðarmanna var að ekki yrði lengra haldið án þess að setja meiri þrýsting á Samtök atvinnulífsins.
þriðjudagur, 12. mars 2019
Núna er hægt að sækja rafrænt um styrki í sjúkrasjóð VM. Fyrst verður opnað á styrki úr sjúkrasjóði og er kominn hlekkur undir hvern og einn inn á rafrænu umsóknargáttina. Einnig verður fyrst um sinn í boði að gera eins og áður þ.
miðvikudagur, 6. mars 2019
Þriðjudaginn 5. mars var haldið námskeið um lífeyrismál hjá VM. Mjög fín mæting og mikil ánægja var með námskeiðið.
Næsta námskeið verður haldið þriðjudaginn 12. mars, fullbókað er á það námskeið. Þeir sem vilja fylgjast með námskeiðinu í gegnum fjarfundarbúnað geta haft samband við skiptiborð VM í síma 575 9800 eða á netfangið vm@vm.