22.1.2019
Hefur þú kynnt þér Iðuna fræðslusetur?
IÐAN fræðslusetur ehf. varð til við samruna fjögurra fræðslumiðstöðva í iðnaði og ferðaþjónustu vorið 2006. Um áramótin 2006/2007 bættist síðan Fræðslumiðstöð bílgreina í hópinn. Eigendur IÐUNNAR eru: Samtök iðnaðarins, Samiðn, MATVÍS, Félag bókagerðarmanna, FIT, VM, Bílgreinasambandið og Samtök ferðaþjónustunnar.
Hlutverk IÐUNNAR er fyrst og fremst að bæta hæfni fyrirtækja og starfsmanna í bíl-, bygginga-og málmiðngreinum, prentiðnaði og matvæla- og veitingagreinum.
Hægt er að kynna sér hvaða námskeið og fræðsla er í boði á sviði málm- og véltækni í Iðunni á næstunni með því að ýta hér.