Fréttir 01 2019

Logo VM með texta

miðvikudagur, 23. janúar 2019

Eingreiðsla fyrir félagsmenn VM sem starfa hjá sveitarfélögum

VM vill minna félagsmenn, sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum, á sérstaka eingreiðslu, kr. 49.000, sem á að greiðast þann 1. febrúar 2019. Um er að ræða kjarasamningsbundna eingreiðslu sem greiðist hverjum starfsmanni miðað við fullt starf sem var við störf í desember 2018 og er enn í starfi í janúar 2019. Upphæðin greiðist hlutfallslega miðað við starfstíma og starfshlutfall í desember 2018.

Iðan2.JPG

þriðjudagur, 22. janúar 2019

Hefur þú kynnt þér Iðuna fræðslusetur?

IÐAN fræðslusetur ehf. varð til við samruna fjögurra fræðslumiðstöðva í iðnaði og ferðaþjónustu vorið 2006. Um áramótin 2006/2007 bættist síðan Fræðslumiðstöð bílgreina í hópinn. Eigendur IÐUNNAR eru: Samtök iðnaðarins, Samiðn, MATVÍS, Félag bókagerðarmanna, FIT, VM, Bílgreinasambandið og Samtök ferðaþjónustunnar.

Logo VM með texta

föstudagur, 11. janúar 2019

Kjaraviðræður SA og VM

Í vikunni hafa verið haldir fjölmargir samningafundir með viðsemjendum okkar hjá Samtökum atvinnulífsins. Sérkröfur iðnaðarmannafélaganna hafa verið ræddar sem er mikilvægt í þessu ferli. Dæmi um okkar kröfur er stytting vinnuvikunnar.

mynd.ragnar.helgi.Keflavík.JPG

mánudagur, 7. janúar 2019

Það er mikilvægt að stjórnvöld hlusti

Guðmundur Helgi formaður VM var í útvarpsviðtali laugardaginn 5. janúar í þættinum Vinnuskúrinn. Hann var þar gestur Gunnars Smára Egilssonar ásamt Guðbjörgu Kristmundsdóttur verðandi formanns Verkalýðs og sjómannafélags Keflavíkur.

samningafundur.JPG

föstudagur, 4. janúar 2019

Iðnaðarmenn funduðu með SA í gær

Í gær var samningafundur iðnaðarmannafélaganna með Samtökum atvinnulífsins haldinn. Þetta var fyrsti fundurinn á árinu en iðnaðarmenn hafa fundað með SA síðan í lok nóvember. Á þessum fundum hafa ýmsar kröfur félaganna verið ræddar en í gær var verklag næstu vikna rætt og ljóst að nokkuð stíft verður fundað næstu vikurnar.

20181228_110901_016.jpg

fimmtudagur, 3. janúar 2019

Vel sóttir fundir vélstjóra á sjó

Líkt og verið hefur stóð VM fyrir fundum á milli jóla og nýárs fyrir vélstjóra á sjó. Góð mæting var á fundina en fundað var í Reykjavík, Ólafsvík, Vestmannaeyjum á Akureyri og á Reyðarfirði. Fyrir jól var fundur á Höfn í Hornarfirði og félagsmenn VM á Vestfjörðum tóku þátt á fundinum í Reykjavík í gegnum fjarfundarbúnað á Ísafirði.