7.9.2017

Breyting á viðmiðunarverði þorsks, ýsu, karfa og ufsa

Á fundi úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna þann 6. September s.l. voru samþykktar
eftirfarandi breytingar á viðmiðunarverðum eftirtalinna fisktegunda:

þorskur, slægður hækkar um 3,0%,
þorskur, óslægður hækkar um 3,0%,
ýsa, slægð hækkar um 2,0%,
ýsa, óslægð er óbreytt,
karfi hækkar um 3,0% og
slægður og óslægður ufsi hækkar um 2,6%

Breytingin tók gildi þann 6. september 2017 og á við um afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila.

Í síðasta kjarasamningi VM við SFS var samið um nýja aðferðafræði við ákvörðun á viðmiðunarverði á þorski, ýsu og karfa í viðskiptum milli skyldra aðila. Nú er miðað við hlutfall af fiskmarkaðsverði síðustu þriggja mánaða, en jafnframt var sett inn viðmið við breytingar á vísitölum afurðaverðs, til að tryggja að breytingar á viðmiðunarverðinu færu ekki úr takti við breytingar á afurðaverði.
Undanfarið hefur verð á fiskmörkuðu (markaðsverð) verið frekar lágt. Ef eingöngu væri miðað við markaðsverðið (eins og var í eldri aðferðarfræði) hefði að þessu sinni þurft að lækka verð á sumum þessara tegunda, t.d. slægðum þorski, en að þessu sinni gripu varnirnar (þ.e. viðmiðunin við afurðaverðið) inn í og því hækkar viðmiðunarverðið í stað þess að lækka.