22.1.2014
Kjarasamningar VM við SA felldir
Kjarasamningar VM við SA, sem undirritaðir voru í desember síðastliðnum, voru felldir í
allsherjaratkvæðagreiðslu. Um var að ræða kjarasamninga VM vegna starfa félagsmanna á
almennum vinnumarkaði í landi, þ.e. málmiðnaðarmanna, netagerðarmanna og vélstjóra,
auk þeirra sem starfa á samningum félagsins við orkufyrirtækin.
Kosið var sameiginlega um samningana og lauk atkvæðagreiðslu kl. 24:00 þriðjudaginn
21. janúar.
Á kjörskrá voru 1751 en 364 tóku þátt í kosningunni, eða 20,8%.
Já sögðu 162, eða 44,5% greiddra atkvæða.
Nei sögðu 196, eða 53,8% greiddra atkvæða og 6 sátu hjá.