Fréttir 04 2013
mánudagur, 29. apríl 2013
Kröfuganga og útifundur á Ingólfstorgi. Safnast verður saman á Hlemmi kl. 13:00 og leggur kröfugangan af stað kl. 13:30. Útifundur á Ingólfstorgi hefst kl. 14:10 og stendur til kl. 15:00.
Félagsmenn fjölmennum og tökum þátt í kröfugöngu og útifundi.
föstudagur, 26. apríl 2013
Bilun kom upp í Gná, þyrlu Landhelgisgæslunnar, þegar hún var á leið í útkall kl. 14:37 fimmtudaginn 25. apríl og varð tafarlaust að lenda þyrlunni. Að sögn flugstjóra gekk lending vel og eru allir heilir á húfi.
þriðjudagur, 23. apríl 2013
Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ segir í samtali við Smuguna að vænta megi verðhjöðnunar í næstu mælingum Hagstofunnar. Hann segir að síðasta verðbólgumæling hafi sýnt meiri verðbólgu en búist hefði verið við.
þriðjudagur, 16. apríl 2013
Aðalfundur VM var haldinn þann 12. apríl s.l. á Grand Hótel í Reykjavík. Fundurinn var sendur út á internetið og sáu starfsmenn Nýherja um útsendinguna.
Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf, auk þess sem að fyrir fundinum lágu tillögur stjórnar VM um breytingu á lögum félagsins og reglugerð Styrktar- og sjúkrasjóðs VM.
miðvikudagur, 10. apríl 2013
Félagsmenn VM í Sameinaða lífeyrissjóðnum búsettir á Akureyri og nágrenni.Starfsmaður Sameinaða lífeyrissjóðsins verður til viðtals um upphaf lífeyristöku í Alþýðuhúsinu að Skipagötu 14, Akureyri milli klukkan 16:00 og 16:45, fimmtudaginn 18. apríl næstkomandi.
miðvikudagur, 10. apríl 2013
Akkur, Styrktar- og menningarsjóður VM, úthlutar árlega fjárstyrkjum til rannsóknarverkefna, brautryðjenda- og þróunarstarfa, menningarstarfsemi og listsköpunar. Markmið og verkefni sjóðsins er að styrkja m.