27.3.2013
Ráðstefna um framtíð fasteignalána á Íslandi
Samtök fjármálafyrirtækja standa ásamt ASÍ og Íbúðalánasjóði fyrir ráðstefnu um framtíð húsnæðislána á Íslandi 4. apríl næstkomandi á Hilton Nordica. Á ráðstefnunni munu sérfræðingar úr ólíkum áttum varpa fram sýn sinni á stöðu mála á íslenska fasteignalánamarkaðnum og hvaða leiðir eru færar til úrbóta.
Karsten Beltoft, framkvæmdastjóri Realkreditforeningen sem eru samtök fasteignaveðlánafyrirtækja á Danmörku, mun halda erindi um danska húsnæðislánakerfið og bera það saman við fyrirkomulagið á hinum Norðurlöndunum. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, mun fara yfir áherslur samtakana í fasteignalánum og Sigurður Erlingsson, forstjóri Íbúðalánasjóðs mun reifa sjónarhorn ÍLS. Ásgeir Jónsson, hagfræðingur, mun kynna niðurstöður skýrslu sem hann vann ásamt Valdimar Ármann, Sigurði Jóhanssyni auk Brice Benaben og Stefaníu Perucci fyrir SFF um verðtryggingu, vexti og verðbólgu á Íslandi. Þá mun Yngvi Örn Kristinsson, hagfræðingur SFF, fara yfir hvaða leiðir eru færar til umbóta á íslenska fasteignalánamarkaðnum.
Í lok ráðstefnunar verða pallborðsumræður með formönnum þeirra stjórnmálaflokka sem eiga sæti á Alþingi.
Ráðstefnan hefst 8:30 og stendur til 11:15. Dagskrá hennar má nálgast hér.
Allir eru velkomnir og fer skráning þátttöku fram hér.