Fréttir 12 2012

föstudagur, 28. desember 2012

Horft til hafs

Í tilefni af 75 ára afmæli Sjómannadagsráðs þann 25. nóvember 2012 lét Sjómannadagsráð gera afsteypu af listaverkinu Horft til hafs eftir Inga Þ. Gíslason. Guðmundur Hallvarðsson formaður Sjómannaráðs afhenti VM Félagi vélstjóra og málmtæknimanna eintak að gjöf á félagsfundi með sjómönnum í gærkvöldi, Guðmundur Ragnarsson veitti styttunni viðtöku fyrir hönd VM.

miðvikudagur, 19. desember 2012

Félagsfundir VM um jól og áramót

Félagsfundir VM um jól og áramót verða haldnir á eftirtöldum stöðum og tímum.Reykjavík, 27. desember Í húsi VM að Stórhöfða 25 - 4. hæð, klukkan 17:00.Dagskrá : málefni vélstjóra á sjó.Akureyri, 28. desember á Hótel KEA, klukkan 17:00. Tengiliður Jón Jóhannsson.

mánudagur, 17. desember 2012

Félagsfundur VM

Félagsfundur verður haldinn í VM húsinu, Stórhöfða 25 Reykjavík, þriðjudaginn 18. desember kl. 20. Fundarefni: endurskoðun kjarasamninga þann 21. janúar 2013 og önnur mál.

miðvikudagur, 12. desember 2012

Styrkir VM til hjálparsamtaka fyrir jólin 2012

Stjórn VM samþykkti að veita Hjálparstarfi kirkjunnar og Mæðrastyrksnefnd fjárhagslegan stuðning fyrir jólin. Samþykkt var að veita Hjálparstarfi kirkjunnar styrk að upphæð kr. 800.000 og Mæðrastyrksnefnd styrk að upphæð kr.

miðvikudagur, 5. desember 2012

Dagbækur VM

Dagbækur VM eru komnar. Félagsmenn geta haft sambandi við skrifstofu félagsins og fengið bókina senda heim.

mánudagur, 3. desember 2012

Afhending Sveinsbréfa

Þann 29. nóvember sl. afhenti VM – Félag vélstjóra og málmtæknimanna og Málmur – samtök fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði, sveinsbréf í málmiðngreinum. Sveinsbréfin voru afhent í hófi sem haldið var fyrir útskriftarnema og maka í húsakynnum VM.